Árs- og sjálfbærniskýrsla 2024
Árið 2024 var farsælt í rekstri sjóðsins. Sameining við Lífeyrissjóð starfsmanna Reykjavíkurborgar náði fram að ganga en sú sameining leiðir til fjárhagslegs ávinnings og aukinnar skilvirkni. Innleiðing og notkun á nýja réttindakerfinu Cala er hafin sem lofar góðu. Það eru því spennandi tímar framundan.
Ávarp stjórnarformanns
Árið 2024 var gott ár fyrir sjóðinn þar sem verðbréfamarkaðir skiluðu góðri ávöxtun. Nafnávöxtun sjóðsins endaði í 12,9% sem samvarar 7,8% raunávöxtun og er 10 ára meðaltal raunávöxtunar nú 3,7%.
Stefnum á sjálfbærni
Brú lífeyrissjóður vill hafa jákvæð áhrif á samfélagið og umhverfið með því að innleiða sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð í allri sinni starfsemi. Það tekur fyrst og fremst til fjárfestinga sjóðsins en þar teljum við að mestu áhrifin og tækifærin liggi.
Afkoma ársins
Afkoma sjóðsins var góð og rekstrarkostnaður reyndist undir áætlun.
Ársreikningur
Stjórn Brúar samþykkti ársreikning sjóðsins fyrir árið 2024 á stjórnarfundi þann 28. apríl 2025.