Forsíða
3.2 Stærðir sjóðsins

Af­koma árs­ins

Afkoma sjóðsins var góð og rekstrarkostnaður reyndist undir áætlun.

Talsverðar markaðssveiflur voru á árinu 2024 bæði á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum ásamt hárri innlendri verðbólgu. Ávöxtun á erlendum hlutabréfamörkuðum hélt áfram að vera góð frá árinu 2023. Innlend hlutabréf lækkuðu fyrri helming ársins en hækkuðu vel seinni helming ársins. Lækkun stýrivaxta hófst í lok október. Efnahagshorfur hafa farið batnandi en nú ríkir óvissuástand. Vísitala innlendra hlutabréfa hækkaði um 12,62% á árinu samanborið við lækkun um 0,52% á árinu 2023, en hækkun varð á innlendum skuldabréfamarkaði.

Talsverðar markaðssveiflur voru á árinu 2024 ásamt hárri innlendri verðbólgu.

Breyting á hreinni eign

fjárhæðir í m.kr.

Breyting á hreinni eign sýnir innflæði og útflæði úr sjóðnum á árinu.

A deildV deildR deildB deild20242023Br.
Iðgjöld18.6876.6252.0283.36030.70030.031669
Lífeyrir-8.323-875-7.826-4.414-21.438-12.137-9.302
Samtals iðgjöld og lífeyrir10.3645.751-5.798-1.0549.26217.894-8.633
Fjárfestingartekjur41.8229.35411.2101.88964.27437.53126.743
Fjárfestingargjöld-83-19-19-4-124-76-48
Samtals fjárfestingartekjur41.7399.33511.1921.88564.15137.45526.696
Rekstrarkostnaður-546-123-231-128-1.028-716-312
Breyting á hreinni eign51.55614.9635.16370272.38554.63317.751
Nafnávöxtun13,1%13,1%12,4%11,9%12,9%10,6%
Raunávöxtun7,9%7,9%7,2%6,9%7,8%2,4%

Breyting á hreinni eign

fjárhæðir í m.kr.

Efnahagsreikningur

fjárhæðir í m.kr.

Hrein eign er það fjármagn sem sjóðurinn hefur yfir að ráða til að standa undir lífeyrisskuldbindingum við sjóðfélaga, þ.e. heildareignir að frádregnum skuldum.

A deildV deildR deildB deild20242023Br.
Eignarhlutir197.55945.12034.2336.325283.237189.00294.235
Skuldabréf101.87523.26761.0668.589194.796128.08466.712
Útlán56.87812.99066822270.75868.5672.190
Samtals fjárfestingar356.31181.37695.96715.137548.791385.653163.138
Kröfur og aðrar eignir2.1644942662413.1653.267-102
Sjóður og veltiinnlán3.6828416996385.8614.8341.026
Samtals aðrar eignir5.8461.3359658799.0268.101925
Ýmsar skuldir-339-78-148-87-651-595-56
Hrein eign í árslok361.81882.63496.78515.929557.166393.159164.007

Hrein eign

fjárhæðir í m.kr.

Hrein eign sjóðsins hefur aukist um 94% frá árinu 2020.