Iðgjöld
Iðgjöld veita réttindi til eftirlauna og áfallatrygginga.
Iðgjöld eru greidd til A og V deildar sjóðsins af heildarlaunum en eru almennt greidd af dagvinnulaunum í B deild. Réttindi sjóðfélaga í B deild eru tryggð með bakábyrgð launagreiðanda.
Iðgjald í A deild er 15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 11,5%.
Iðgjald í V deild er 15,5% af heildarlaunum þar sem hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 11,5% en hægt er að ráðstafa 3,5% af lágmarksiðgjaldi launagreiðanda í séreign.
Iðgjald í R og B deild er 12,0% af dagvinnulaunum og eftir atvikum af vaktaálagi og orlofs- og persónuuppbót. Ekki er greitt iðgjald af yfirvinnu. Hlutur launþega er 4,0% og mótframlag launagreiðanda er 8,0%.
Virkum sjóðfélögum sem greiða iðgjöld í A og V deild fjölgar á milli ára.
Iðgjaldagreiðslur
Aukaframlög í R deild og B deild eru tilkomin vegna bakábyrgðar sveitarfélaga.
Iðgjaldagreiðslur
Fjöldi virkra sjóðfélaga
Virkum sjóðfélögum sem greiða iðgjöld í A og V deild fjölgar á milli ára en þeim fækkar í B deild og R deild því þær eru lokaðar nýjum sjóðfélögum.
Meðalaldur
Meðalaldur virkra sjóðfélaga eftir deildum á árinu 2024.
Launagreiðendur
V deild er öllum opin og hefur því fleiri launagreiðendur en hinar deildirnar.
Launagreiðendur
| Launagreiðendur | 2024 | Hlutfall | |
|---|---|---|---|
| 1 | Reykjavíkurborg | 7.897 | 32,5% | 
| 2 | Kópavogsbær | 2.010 | 8,2% | 
| 3 | Hafnarfjarðarkaupstaður | 1.448 | 5,9% | 
| 4 | Akureyrarbær | 995 | 4,1% | 
| 5 | Garðabær | 905 | 3,7% | 
| 6 | Mosfellsbær | 728 | 3,0% | 
| 7 | Reykjanesbær | 716 | 2,9% | 
| 8 | Sveitarfélagið Árborg | 580 | 2,4% | 
| 9 | Strætó bs. | 378 | 1,5% | 
| 10 | Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs. | 377 | 1,5% | 
| Aðrir | 8.385 | 34,3% | |
| Samtals | 24.420 |