Kostnaður
Kostnaði sjóðsins er skipt í rekstrarkostnað og fjárfestingargjöld.
Allur skrifstofu- og stjórnunarkostnaður lífeyrissjóðsins fellur undir rekstrarkostnað. Þóknanir til fjármálafyrirtækja flokkast sem fjárfestingargjöld og skiptast þær í beinar þóknanir, sem greiddar eru samkvæmt samningum eða gjaldskrá, og óbeinar þóknanir sem koma fram í gengismun í viðskiptum eða vaxtatekjum.
Rekstrarkostnaður var undir samþykktri áætlun sjóðsins á árinu
Kostnaður
Rekstrarkostnaður hækkaði um 43% á milli ára. Rekstrarkostnaður var undir samþykktri áætlun sjóðsins á árinu. Þá hefur rekstrarkostnaður sem hlutfall af meðalstöðu hreinnar eignar til greiðslu lífeyris lækkað milli ára.
Fjöldi stöðugilda
Síðastliðin fimm ár hefur meðalfjöldi stöðugilda hækkað.
Rekstrarkostnaður
Rekstrarkostnaður
Lykilhlutföll
Oft er horft á rekstrarkostnað í hlutfalli við aðrar stærðir sjóðsins eins og iðgjöld og meðalstöðu hreinnar eignar.
Bein fjárfestingargjöld
Bein fjárfestingagjöld hækka um 63% frá fyrra ári.
Óbein fjárfestingargjöld
Óbeinar þóknanir erlendra sjóða hafa hækkað mikið á síðustu árum sem er í takt við stefnu sjóðsins um stækkun eignaflokksins.