Forsíða
3.5 Stærðir sjóðsins

Líf­eyr­ir

Sjóðfélagar afla sér réttinda til eftirlauna sem og makalífeyris, barnalífeyris og örorkulífeyris með greiðslu iðgjalda.

Deildir Brúar lífeyrissjóðs

Sjóðfélögum í A og V deild er heimilt að hefja töku eftirlauna á milli 60 og 80 ára aldurs. Eftirlaunaréttindi þeirra eru mismunandi eftir því hvort þeir greiddu iðgjöld til sjóðsins fyrir 1. júní 2017 eða eftir þann tíma.

Sjóðfélagar í R og B deild sem eru orðnir 65 ára og hafa látið af störfum hjá sveitarfélagi eða stofnunum þess geta hafið töku lífeyris. Mögulegt er að hefja töku lífeyris fyrr ef sjóðfélagi hefur náð 95 ára reglunni, sem er samanlagður sjóðfélagaaldur og lífaldur.

A deildaðild starfsfólks sveitarfélaga
V deilder öllum opin
R deildréttindasafn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar
B deildsjö réttindasöfn lokaðra lífeyrissjóða

Lífeyrisgreiðslur

eftir deildum árið 2024

Meðalaldur

Meðalaldur lífeyrisþega eftir tegund lífeyris árið 2024

Eftirlaunaþegar74,3ára
Örorkulífeyrisþegar55,9ára
Makalífeyrisþegar72,0ára
Barnalífeyrisþegar14,5ára

Tegund lífeyris

Ellilífeyrir er greiddur til æviloka í öllum deildum.

Makalífeyrir í A deild er greiddur til fimm ára eða þar til yngsta barn nær 22 ára aldri. Í V deild er makalífeyrir greiddur til tveggja ára eða þar til yngsta barn nær 18 ára aldri. Í R deild og B deild greiðist makalífeyrir ævilangt.

Barnalífeyrir er greiddur uns barn verður 22 ára í A deild en 18 ára í V, R og B deild.

Örorkulífeyrir tekur mið af áunnum réttindum og miðast að lágmarki við 40% örorkumat í A deild, 50% örorkumat í V deild og 10% örorkumat í R deild og B deild.

Eftirlaun eru greidd til æviloka í öllum deildum

Fjöldi lífeyrisþega á árinu

eftir tegund lífeyris

Lífeyrisþegar sem fá greiddan ellilífeyri eru 71,6% af heildarfjölda lífeyrisþega. Hækkun frá fyrra ári má skýra með sameiningu Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjarvíkurborgar við sjóðinn í nýja deild, R deild.

Fæðingarár lífeyrisþega
A deild

fjöldi á árinu

Fæðingarár lífeyrisþega
V deild

fjöldi á árinu

Færðingarár lífeyrisþega
R deild

fjöldi á árinu

Fæðingarár lífeyrisþega
B deild

fjöldi á árinu
*Fáir barnalífeyrisþegar eru í B deild.