Forsíða
3.8 Stærðir sjóðsins

Verð­bréf

Við ákvörðun um samsetningu eigna er litið til núverandi ávöxtunar og stefnu eignaflokka, væntanlegrar útgáfu og skráningar sem og annarra þátta sem talið er að kunni að hafa áhrif á fjárfestingarumhverfi og möguleika sjóðsins til ávöxtunar á komandi ári.

Eignum A og V deilda sjóðsins er stýrt eins og um eina deild væri að ræða og hafa þær sameiginlega fjárfestingarstefnu og eignastýringu. B deild hefur eitt eignasafn með eigin fjárfestingarstefnu en haldið er utan um hvert réttindasafn deildarinnar fyrir sig. R deild er með eitt eignasafn með eigin fjárfestingarstefnu.

Fjárfestingarstefna deildanna er samþykkt af stjórn sjóðsins fyrir hvert ár. 

Raunávöxtun

fimm ára meðaltal

Langtímaávöxtun sjóðsins er góð en fimm ára meðaltal hreinnar raunávöxtunar lækkaði verulega vegna afkomu ársins 2022.

*R deild sameinaðist sjóðnum árið 2024 og því er ekki langtímaávöxtun þeirrar deildar í sundurliðun.

Fjárfestingareignir

eftir gjaldmiðlum

Vægi eigna í erlendri mynt sem hlutfall af heildareignum sjóðsins hefur aukist á undanförnum árum.

Fjárfestingareignir

eftir eignaflokkum

Vægi skráðra eignarhluta í félögum og sjóðum hefur aukist en samhliða hefur dregið úr skráðum skuldabréfum.

20242023202220212020
Skráðir eignarhlutir í félögum og sjóðum46,5%42,6%40,0%40,9%30,7%
Óskráðir eignarhlutir í félögum og sjóðum5,1%6,4%7,1%6,9%6,8%
Skráð skuldabréf30,1%32,6%36,8%39,1%46,5%
Óskráð skuldabréf18,3%18,4%16,1%13,1%15,3%
Bundnar bankainnstæður0,0%0,0%0,0%0,0%0,7%
Samtals100%100%100%100%100%

Eignarhlutir

fjárhæðir í m.kr.

Eignarhlutum í félögum og sjóðum er skipt eftir skráðri og óskráðri hlutabréfaeign og eftir mismunandi tegundum sjóða.


Eignir í hlutabréfasjóðum og skráðum hlutabréfum hafa aukist í samræmi við stefnu sjóðsins.

Eignarhlutir

eftir innlendum og erlendum eignum árið 2024

Á undanförnum árum hafa fjárfestingar í erlendum eignum aukist hjá sjóðnum og eru nú meira en helmingur af eignarhlutum í félögum og sjóðum.

Skuldabréf

færð á gangvirði árið 2024

Skuldabréf lánastofnana færð á gangvirði hafa hlutfallslega aukist í safni sjóðsins undanfarin ár.

Skuldabréf

færð á kaupkröfu árið 2024

Hækkun á hlutfalli skuldabréfa með ríkisábyrgð má skýra með sameiningu Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar í nýja R deild sjóðsins.

Verðbréfaviðskipti

fjöldi viðskipta eftir deildum

Fjöldi viðskipta á við bæði kaup og sölu verðbréfa.