Ávarp stjórnarformanns
Lífeyrissjóðir gegna veigamiklu hlutverki í íslensku samfélagi, bæði sem mikilvægur hluti af innviðum velferðarkerfisins og sem stórir aðilar á fjármálamarkaði. Þessi tvíþætta ábyrgð kallar á jafnvægi milli stöðugleika, árangurs og siðferðilegrar ábyrgðar sem við höfum lagt ríka áherslu á að sinna af kostgæfni.
Árið 2024 var gott ár fyrir sjóðinn þar sem verðbréfamarkaðir skiluðu góðri ávöxtun. Nafnávöxtun sjóðsins endaði í 12,9% sem samvarar 7,8% raunávöxtun. Sjóðurinn er langtímafjárfestir og hefur ávöxtun síðustu ár verið góð fyrir utan árið 2022 en 10 ára meðaltal raunávöxtunar er nú 3,7%.
Ábyrgð lífeyrissjóða kallar á jafnvægi milli stöðugleika, árangurs og siðferðilegrar ábyrgðar
Sameiningar
Þann 1. janúar 2024 var Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar (LsRb) sameinaður inn í Brú undir nýrri R deild og þar haldið utan um rekstur, eignir, skuldir og skuldbindingar LsRb en meginforsendan fyrir sameiningunni var að áfallin réttindi og réttindaávinnsla sjóðfélaga til framtíðar er og verður óbreytt sem og bakábyrgð Reykjavíkurborgar. Sameiningin leiðir bæði til fjárhagslegs ávinnings sem og betri nýtingar starfsfólks sjóðsins.
R deild heldur utan um rekstur, eignir, skuldir og skuldbindingar LsRb
Frekari sameiningar
Stjórn Brúar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar (LSA) hafa hafið viðræður um samruna sjóðanna miðað við 1. janúar 2025. Ef af verður mun LSA renna inn í nýja deild hjá sjóðnum. Grundvöllur samrunans er að réttindi og réttindaávinnsla sjóðfélaga LSA verður óbreytt sem og bakábyrgð Akureyrarbæjar.
Samstarf við Almenna lífeyrissjóðinn
Á síðustu árum hefur áhugi á séreignarsparnaði aukist, meðal annars vegna hækkunar á skylduiðgjaldi í lífeyrissjóð og auknum sveigjanleika til að greiða í séreign. Í ljósi þess hve hátt hlutfall af iðgjöldum í V deildinni fer í séreignarsparnað telur sjóðurinn að það sé hlutverk hans að fræða og leiðbeina sjóðfélögum sínum þannig að þeir geti tekið upplýsta ákvörðun um val sitt á séreignarleiðum. Í dag eru í boði 77 sparnaðarleiðir í séreign og var því hugmyndin um að sjóðurinn myndi stofna aftur séreignardeild úr myndinni enda óhagkvæmur kostur fyrir sjóðfélaga okkar. Í byrjun mars hóf sjóðurinn samstarf með Almenna lífeyrissjóðnum um séreign en við sjáum þannig fjölmörg tækifæri til að auka þjónustu við okkar sjóðfélaga. Með samstarfinu vill Brú upplýsa sjóðfélaga sína um góðan kost, en hjá Almenna er hægt að velja á milli sjö ávöxtunarleiða fyrir séreignarsparnaðinn í allt frá 100% í íslenskum innlánum yfir í 100% í erlendum eignum. Sjóðfélagar geta valið úr leiðum með tilliti til aldurs og áhættuþols og ekki er greiddur sölu- eða upphafskostnaður við söfnun séreignarlífeyrissparnaðar.
Hlutverk sjóðsins er að fræða og leiðbeina sjóðfélögum sínum þannig að þeir geti tekið upplýsta ákvörðun um val á séreignarleiðum
Ábyrg fjárfesting og sjálfbær framtíð
Við höfum haldið áfram að þróa og innleiða stefnu sjóðsins um ábyrgar fjárfestingar. Samfélagsleg ábyrgð er ekki aðeins siðferðisleg skylda heldur einnig lykilþáttur í því að draga úr langtímaáhættu og stuðla að stöðugri ávöxtun. Við leggjum áherslu á umhverfisþætti, félagslega þætti og stjórnarhætti í fjárfestingum og leitum sífellt betri leiða til að gera áhrif okkar mælanleg og markviss.
Framtíðarsýn
Stjórn sjóðsins hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að efla stjórnarhætti, skerpa stefnumótun og styrkja innri ferla. Þessi vinna heldur áfram með áherslu á að tryggja góð vinnubrögð, aðhald í rekstri og virka upplýsingagjöf. Við lítum björtum augum fram á veginn og höldum áfram að þjóna sjóðfélögum okkar af heiðarleika, skynsemi og ábyrgð.
Breytingar á stjórn
Á árinu 2024 sagði Jónína Hauksdóttir sig úr varastjórn sjóðsins og í hennar stað kom Anna Rós Sigmundsdóttir.
Þakkir til stjórnar og starfsfólks
Ég vil að lokum færa starfsfólki sjóðsins bestu þakkir fyrir faglegt starf og ómetanlegt framlag til reksturs og þjónustu við sjóðfélaga. Einnig vil ég þakka samstarfsfólki mínu í stjórn og endurskoðunarnefnd fyrir öflugt samstarf sem byggir á sameiginlegri ábyrgð og metnaði til að gera gott enn betra.